Allar umsagnir
Umsögn

Public Enemies

9/10
2009Horft 8. ágúst 2009IMDb
2 klst 20 mínCrime, Historyleikstj. Michael Mann

MeðJohnny Depp, Christian Bale, Marion Cotillard

Mjög kúl mynd. Michael Mann kann sko að gera action myndir - klikkaðir byssubardagar. Það voru líka svo fáránlega kúl hljóð í byssuskotunum - ótrúlegur bassi, það titraði allt á köflum. Virkilega flott mynd og glæsileg myndataka. Greinilega mikið lagt í umhverfi, búninga o.s.frv. til að passa við þetta tímabil - kom vel út. Ég geri ráð fyrir að myndin hafi verið tekin upp stafrænt og það setti svolítið sérstakan brag á hana. Hún var svolítið hrá á köflum og smá dogma stemmning þannig séð að það var eins og það væri eiginlega bara notast við náttúrulega/tiltæka birtu. Það gerði að stundum var eins og maður væri að horfa á heimildamynd, sem gerði hana svolítið raunverulegri. Topp leikarar - Johnny Depp og Christian Bale eru náttúrulega með bestu leikurum sem eru í gangi núna. Spennandi saga og skemmtilegir eltingaleikir.

Haltu áfram

Þér gæti líka líkað

Valið úr safninu út frá seríu, leikurum, leikstjóra, flokki og einkunn.