Umsögn
Vá, þetta er klikkuð mynd - eins og í fyrri myndinni er bara stanslaus keyrsla allan tíman - endalaus adrenalín rússíbanaferð. Virkilega fyndin. Mögnuð myndataka og hröðustu klippingar sem maður hefur séð síðan... ja, Crank 1. Temmilega súr og random á köflum - en það er bara fyndið... Mjög brútal, stanslaust ofbeldi. Jason Statham er náttúrulega bara töffari. Þessi mynd er svolítið sér á báti - ýmislegt sem kom mér á óvart og sem ég býst ekki við að sjá í annarri bíómynd á næstunni. Skemmtilega frumleg að því leyti.
Haltu áfram
Þér gæti líka líkað
Valið úr safninu út frá seríu, leikurum, leikstjóra, flokki og einkunn.