Kvikmyndagagnrýni
Stórbrotin mynd! Þetta er rosalegt - annað eins samansafn af harðhausum þekkist ekki. Virkilega gaman að sjá alla þessa gaura saman í einni mynd. Sérstaklega gaman að sjá Chuck Norris + sjá Bruce Wilis og Arnold Schwarzenegger taka meira þátt í action-inu ;) Ef þeir vilja toppa þetta þyrftu þeir að bæta Steven Seagal við ;) Þetta er náttúrulega grín-action mynd, þeir eru í raun bara að gera grín að sjálfum sér - endalaust mikið af one-liners og gullmolum (sem eru mis hnittnir og fyndnir). En þetta er afþreying eins og hún gerist best - nóg af bardögum, byssum, sprengingum... og gott grín :) Hún náði ekki alveg að halda eins góðum takti og fyrri myndin, ekki eins góð keyrsla.
Meira að skoða
Fleira í þessum dúr
Valið úr safninu eftir seríu, leikurum, leikstjóra, flokki og einkunn.