Review
Virkilega flott mynd - annað eins hefur ekki sést, einstök mynd. Stútfull af þekktum (og góðum leikurum). Það voru nokkur áhugaverð atriði í Extended útgáfunni en líka atriði sem maður skilur af hverju var sleppt. Á sínum tíma var talað um að þeir ætluðu að gera Sin City 2 og jafnvel 3 líka en maður hefur ekki heyrt neitt um það nýlega.
Þetta skrifaði ég víst þegar ég sá hana fyrst: "Shit hvað þetta er svöl mynd! Útlitið, persónurnar og samræðurnar eru alveg að gera sig. Mjög skemmtileg saga, hörku action-atriði og fullt af hot gellum. Topp úrval leikara sem voru alveg að skila sínu – sérstaklega Mickey Rourke sem er að koma sterkur inn aftur eftir smá pásu. Mæli eindregið með að sem flestir sjái þessa – gæða mynd í alla staði. Síðan er ekki verra að 2 og 3 eru á leiðinni ..hlakka til."
Keep watching
You might also like
Picked from the archive based on series, genre, director, and rating.