Review
Mjög töff mynd. Skemmtilegur myndastíll - ef þú fílar ekki þegar myndavélin er á hreyfingu þá er þetta alls ekki mynd fyrir þig - myndin er s.s. öll frá sjónarhorni fólksins sem heldur á myndavélinni. Mjög góð action/skrímsla mynd - góð keyrsla, maður lifði sig alveg inn í þetta (nánast eins og maður væri gaurinn sem hélt á myndavélinni). Það hjálpaði líka að gera myndina "raunverulegri" að aðalleikararnir eru ekki mjög þekktir.
Uppfært: Ég var reyndar að fatta að þótt þessi myndastíll sé skemmtileg tilbreyting þá er þetta ekki alveg ný uppfinning hjá þeim - Blair Witch Project notaði náttúrulega sömu tækni. Nú hafa báðar þessar myndir verið kallaðar ódýrar í framleiðslu - það er kannski bara gott trick til að halda niður kostnaði - láta leikarana bara halda á myndavélinni ;)
Keep watching
You might also like
Picked from the archive based on series, genre, director, and rating.