Kvikmyndagagnrýni
Mjög fyndin mynd. Fullt af kómískum atriðum og orðasamskiptum. Gott handrit. Skemmtilegar og skrautlegar persónur - og nóg af þeim. Fullt af þekktum og góðum leikurum (sjaldan sem maður sér svona marga þekkta leikara í einni mynd).
Fínasta keyrsla (flæði) og áhugaverður söguþráður. Spennandi. Leit vel út - skemmtileg stemning, skemmtilegir litir. Þetta var smá eins og barnaævintýri fyrir fullorðna. Mjög vel leikstýrð. Listaverk. Wes Anderson er með einstakan og skemmtilegan stíl.
Meira að skoða
Fleira í þessum dúr
Valið úr safninu eftir seríu, leikurum, leikstjóra, flokki og einkunn.