Allar umsagnir
Kvikmyndagagnrýni

Noah

9/10
2014Horft 19. mars 2014IMDb
2 klst 18 mínDrama, Adventureleikstjóri Darren Aronofsky

MeðRussell Crowe, Jennifer Connelly, Ray Winstone

Mögnuð mynd. Risastór. Virkilega spennandi. Drama. Mjög töff action atriði. Áhugaverður ævintýraheimur. Vel leikin - enda einvala lið leikara. Nick Nolte stóð sig vel sem gamall steinn, röddin mjög viðeigandi. Íslenska náttúran var mögnuð í sínu hlutverki - endalaust af fjölbreyttri fegurð. Mér fannst Ísland gera rosalega mikið fyrir þessa mynd - gerði hana að enn meira listaverki. Myndin leit mjög vel út - búningar, umhverfi o.s.frv. Mér fannst þetta smá ádeila á kjötætur - að öll dýr eigi rétt á að lifa. Svo var þetta líka "áróður" fyrir því að passa upp á náttúruna.

Meira að skoða

Fleira í þessum dúr

Valið úr safninu eftir seríu, leikurum, leikstjóra, flokki og einkunn.