Allar umsagnir
Umsögn

Killers of the Flower Moon

7/10
2023Horft 22. nóvember 2023IMDb
3 klst 26 mínCrime, Historyleikstj. Martin Scorsese

MeðLeonardo DiCaprio, Robert De Niro, Lily Gladstone

Mjög löng mynd. Lengsta mynd sem ég hef séð í bíói – eða síðan ég sá síðustu mynd Martin Scorsese, The Irishman. En hún var ekki langdregin – mikil saga, áhugaverð. Brútal og átakanleg. Vönduð mynd – vel gerð og hellingur af góðum leikurum. Pjúra kvikmyndagerð – engar hraðar klippingar, poppandi tónlist eða stútfullt af tæknibrellum. Mér fannst vera smá vísun í “true crime” hlaðvörp í lokinn – nokkuð skemmtilegt.

Haltu áfram

Þér gæti líka líkað

Valið úr safninu út frá seríu, leikurum, leikstjóra, flokki og einkunn.