Kvikmyndagagnrýni
Svakaleg mynd! Nánast stanslaus keyrsla af ekta John Wick bardögum – í tæpa 3 tíma 😅 Virkilega flott mynd – geggjuð myndataka og verið að berjast um allan heim í töff umhverfi. Ég var að elska að það var spilað Genesis með Justice í svakalegu bardagaatriði í París. John Wick virðist vera með endalausar birgðir af adrenalíni – hann getur alltaf haldið áfram þótt hann sé allur lemstraður og særður 😉 Stundum smá kómískt hvað hann lendir í. Mikið af tilkomumiklum atriðum sem var örugglega krefjandi að skipuleggja og hanna bardaga kóreógrafíuna.
Meira að skoða
Fleira í þessum dúr
Valið úr safninu eftir seríu, leikurum, leikstjóra, flokki og einkunn.