Allar umsagnir
Umsögn

Inside Llewyn Davis

5/10
2013Horft 26. febrúar 2014IMDb
1 klst 45 mínDrama, Musicleikstj. Ethan Coen

MeðOscar Isaac, Carey Mulligan, Justin Timberlake

Þetta er ekki týpísk afþreying eins og margar bíómyndir eru. Þetta er meira listaverk - voða flott og að vissu leyti vandað, en maður þarf svolítið að spá í því til að átta sig á hvað listamaðurinn/listamennirnir eru að reyna miðla. Það var ekki mikil gleði í þessari mynd. Í raun allt ömurlegt hjá þessum gaur. Drama. Þunglyndi. Ágætlega kúl Instagram/vintage filter á myndinni ;) Lúmskt skopleg á köflum. Skemmtilega skrautlegar persónur, eins og eru oft í Coen myndum. Vissir kaflar í sögunni voru áhugaverðir, en á heildina litið þá vantaði einhvern kjarna í söguþráðinn.

Haltu áfram

Þér gæti líka líkað

Valið úr safninu út frá seríu, leikurum, leikstjóra, flokki og einkunn.