Kvikmyndagagnrýni
Fínasta ævintýramynd. Svolítið ótrúleg á köflum en það er náttúrulega bara partur af öllum góðum ævintýramyndum :) Söguþráðurinn kom mér svolítið á óvart... eitthvað sem ég bjóst ekki alveg við í Indiana Jones mynd - en áhugavert plot samt sem áður. Harrison Ford stóð sig bara ágætlega - ekkert áberandi að hann er 65 ára í alls konar fimleikum. En tæknibrellurnar - vá! Sum atriðin voru alveg mögnuð og maður gat alls ekki séð að þetta væri teiknað í tölvu - þeir kunna þetta hjá Industrial Light & Magic.
Meira að skoða
Fleira í þessum dúr
Valið úr safninu eftir seríu, leikurum, leikstjóra, flokki og einkunn.