Review
Mjög kúl mynd. Michael Mann kann sko að gera action myndir - klikkaðir byssubardagar. Það voru líka svo fáránlega kúl hljóð í byssuskotunum - ótrúlegur bassi, það titraði allt á köflum. Virkilega flott mynd og glæsileg myndataka. Greinilega mikið lagt í umhverfi, búninga o.s.frv. til að passa við þetta tímabil - kom vel út.
Ég geri ráð fyrir að myndin hafi verið tekin upp stafrænt og það setti svolítið sérstakan brag á hana. Hún var svolítið hrá á köflum og smá dogma stemmning þannig séð að það var eins og það væri eiginlega bara notast við náttúrulega/tiltæka birtu. Það gerði að stundum var eins og maður væri að horfa á heimildamynd, sem gerði hana svolítið raunverulegri. Topp leikarar - Johnny Depp og Christian Bale eru náttúrulega með bestu leikurum sem eru í gangi núna. Spennandi saga og skemmtilegir eltingaleikir.
Keep watching
You might also like
Picked from the archive based on series, genre, director, and rating.