Review
Mjög töff mynd. Matt Damon alveg að virka í svona super soldier hlutverki (þetta var samt ekki eins extreme og Jason Bourne). Góð action keyrsla... eltingaleikirnir voru intense - hlaupandi á milli húsa á fullu og myndatökumaðurinn þétt á eftir. Mjög flott myndataka. Er að fíla svona urban warfare myndir - eins og Black Hawk Down, Body of Lies o.s.frv. Eitthvað spennandi, öðruvísi og ófyrirsjáanlegt við þannig bardaga.
Mér fannst umhverfið frekar magnað... mörg skot þar sem sást yfir mjög stórt (stríðshrjáð) svæði og það var nokkuð impressive. Veit ekki hversu miklu var bætt við með tölvugrafík en þetta var ansi trúverðugt. Hefði alveg mátt ljúga því að mér að þetta hefði bara verið tekið upp í Írak - en þetta var víst tekið upp á Spáni og svo í Morokkó.
Herinn er oft með alls konar kúl tækni... ég var að fíla þyrluna sem flaug yfir borgina og gat greint sjálfkrafa (í myrkri) hvort einhver væri Bandarískur hermaður eða óvinur.
Keep watching
You might also like
Picked from the archive based on series, genre, director, and rating.