All reviews
Review

Body of Lies

8/10
2008Watched November 22, 2008IMDb
2h 8mAction, Dramadir. Ridley Scott
Mjög kúl mynd. Virkilega vel gerð, leit mjög vel út - ekta Ridley Scott mynd. Action atriðin voru mjög flott. Vel leikstýrð... mér fannst satellite kvikmyndatakan nokkuð kúl. Nokkuð gott handrit - áhugaverð saga. Svona Mið-Austurlanda myndir eru líka áhugaverðar af því að maður hefur ekkert kynnst þeim heimshluta og það er alltaf gaman að skyggnast aðeins inn í hann. Hani - yfirmaður Jórdanísku leyniþjónustunnar var náttúrulega langflottasti karakterinn - alltaf í fáránlega flottum jakkafötum og mjög yfirvegaður. Eitt sem var reyndar að bögga mig örlítið - þegar það var tekið fram að núna værum við á nýjum stað, í nýju landi þá kom alltaf texti fyrir neðan með staðsetningunni. En þetta var bara eins og annar undirtexti en ekki í einhverjum kúl font og með einhverju töff animation (eins og ég geri ráð fyrir að sé í útgáfunni sem er sýnd í Bandaríkjunum). Mér finnst eiginlega eins og það sé að fjarlægja smá hluta af myndinni þannig að hún er ekki sýnd eins og leikstjórinn vildi hafa hana. Síðan eitt sem ég tók eftir - ný tegund af product placement - þegar það var verið að sýna eitthvað gerast í einhverri tölvu þá hljómuðu ýmis Microsoft hljóð - en það var ekkert annað sem gaf til kynna að verið væri að vinna í Windows. Ég held alla vega að þetta hafi verið product placement sem Microsoft hefur borgað fyrir - skil ekki af hverju það ætti annars að vera troða inn fullt af Microsoft hljóðum þarna (New Mail Notification, Default Beep, etc.). En kannski er það bara ég og nokkrir aðrir sem taka eftir þessu... en undirmeðvitundin hjá öðrum tekur kannski eftir þessu - er það ekki yfirleitt markmiðið með product placement?. But I digress... :) Flott og spennandi mynd.

Keep watching

You might also like

Picked from the archive based on series, genre, director, and rating.