Review
Sérstök mynd... frekar artý og eiginlega svolítið abstrakt. Sérstakur stíll yfir henni - þar sem myndin er um blindu og blint fólk þá eru senur oft mjög hvítar, eiginlega overexposed.
Mjög vel gerð mynd, lítur vel út, slatti af þekktum leikurum... ekta svona listræn mynd sem leikarar vilja taka þátt í af því að það er svo kúl að taka þátt í svona öðruvísi myndum.
Ég er ekki alveg viss hvar hún átti að gerast - eiginlega eins og hún átti að gerast í framtíðinni... partar af henni voru eins og þetta væri Tókíó, partar eins og New York og partar eins og Brasilía... allir töluðu ensku (einstaka talaði líka spænsku) og umferðarskilti voru á ensku en samt voru bílnúmerin alls ekki bandarísk, frekar evrópsk/suður-amerísk... Ah, ok... skv. Wikipedia: "The producers were able to acquire rights with the condition that the film would be set in an unrecognizable city." - kúl.
Nokkuð áhugaverðar pælingar varðandi hversu mikið lífið manns breytist þegar maður verður allt í einu blindur.
Keep watching
You might also like
Picked from the archive based on series, genre, director, and rating.