Review
Dísillinn maður, stendur alltaf fyrir sínu ;) Þetta var eiginlega nokkurn veginn það sem ég bjóst við - mindless action-froða, en fínasta afþreying. Mjög kúl mynd, fullt af sprengingum og action atriðum... Myndin á s.s. að gerast einhvern tíman í framtíðinni og það var áhugavert hvernig þeir sáu framtíðina fyrir sér - ekki mjög björt framtíð. Allt í rugli í Austur-Evrópu, stríðsástand og volæði, trúarsöfnuður með hlutabréf sem gekk bara út á að hagnast (skot á Scientology?) og síðan var stemmningin í New York svolítið svipuð og í Blade Runner - allir skýjakljúfarnir þaknir auglýsingum og neon ljósum. Síðan átti Google allar sjónvarpsstöðvar - alla vega Google lógóið á öllum video feeds. Eitt sem var mjög kúl - Vin Diesel tók út kort sem virtist vera venjulegt stórt road map en síðan zoom-aði hann bara inn og færði kortið til með puttunum. Nokkuð kúl - væri fínt að vera með þannig í nánustu framtíð.
Viðbót: Hey, já... síðan þegar myndin var að byrja sá maður á skjánum í risastórum stöfum: Original Music by: Atli Örvarsson - Iceland represent! Hann var alveg að standa sig - tónlistin var mjög góð, hjálpaði að skapa töff stemmningu.
Keep watching
You might also like
Picked from the archive based on series, genre, director, and rating.